Næsta mót: HM í handbolta 2027 · miðvikudagur, 13. janúar

Tippleikur fyrir vinnustaðinn

Búðu til keppni fyrir vinnustaðinn, bjóddu vinnufélögunum og giskaðu á úrslit leikjanna á HM í handbolta 2027. Stigin reiknast sjálfkrafa og stöðutaflan uppfærist eftir hvern leik.

1. Stofnaðu vinnustað

Það tekur innan við mínútu. Keppni fyrir mótið verður til sjálfkrafa.

2. Bjóddu vinnufélögum

Sendu hlekk á Teams, Slack eða í tölvupósti. Allir skrá sig inn á eigin aðgangi.

3. Giskaðu og fylgstu með

Giskaðu á úrslit, sigurvegara og sæti Íslands. Líkurnar frá veðbönkum hjálpa þeim sem fylgjast minna með.

Fyrir starfsmannafélög og mannauðsstjóra

Allur vinnustaðurinn með, fyrir eitt fast verð

Tippleikur sér um allt: skráningu, stigagjöf, stöðutöflu, áminningar og færslur á Teams eða Slack. Þið veljið bara verðlaunin.

  • Ótakmarkaður fjöldi

    Allir á vinnustaðnum geta verið með, sama hversu margir.

  • Teams og Slack

    Leikir dagsins á morgnana, úrslit og staðan eftir hvern leik og leikmaður dagsins.

  • Áminningar

    Tölvupóstur 3 klst. fyrir leik til þeirra sem eiga eftir að giska.

  • Deildakeppni

    Fjármál gegn sölu: deildir keppa um hæsta meðaltal stiga.

  • Verðlaun

    Leikmaður dagsins, leikmaður umferðar og heildarsigurvegari, ásamt ykkar verðlaunatexta.

  • Ykkar útlit

    Lógó og litur vinnustaðarins á síðunum og í tölvupóstum.

  • Sjónvarpsskjár

    Staðan á skjánum á kaffistofunni, uppfærist sjálf.

  • Tölfræði og útflutningur

    Þátttaka eftir deildum og CSV með stöðu og sigurvegurum.

Vinnustaður

9.990 kr.

fyrir allt mótið · ekki VSK

  • ✓ Greitt gegn reikningi, 14 daga eindagi
  • ✓ Keppnin virkjast strax við pöntun
  • ✓ Allir fítusar innifaldir
Stofna vinnustað
Samanburður: án pöntunar og Vinnustaður
Án pöntunarVinnustaður
Stofna vinnustað og bjóða fólki✓✓
Giska á leiki og bónusspurningar–✓
Stöðutafla og verðlaun–✓
Deildakeppni–✓
Teams/Slack og áminningar–✓
Eigið útlit og sjónvarpsskjár–✓
Fjöldi þátttakendaÓtakmarkaðurÓtakmarkaður

Þið getið stofnað vinnustaðinn og boðið fólki strax. Leikurinn opnast þegar pantað hefur verið.

Algengar spurningar

›Er þetta veðmál?

Nei. Enginn leggur undir peninga og Tippleikur greiðir engin verðlaun. Þetta er spáleikur til skemmtunar. Ef vinnustaðurinn vill veita verðlaun, t.d. gjafabréf, ákveðið þið það sjálf.

›Hvernig virkar greiðsla gegn reikningi?

Stjórnandi smellir á „Panta“ og fyllir út nafn og kennitölu félagsins og netfang fyrir reikning. Reikningur upp á 9.990 kr. berst strax í tölvupósti með 14 daga eindaga og keppnin virkjast um leið. Verðið ber ekki virðisaukaskatt því seljandi er ekki á VSK-skrá.

›Hvar eru gögnin geymd?

Vefurinn keyrir í Frankfurt í Þýskalandi. Við geymum aðeins það sem þarf: nafn, netfang og spár. Engar auglýsingakökur og engin rakning. Hver notandi getur eytt aðganginum sínum sjálfur í stillingum.

›Hvað gerist eftir mótið?

Stöðutaflan og verðlaunahafar eru áfram aðgengileg og stjórnandi getur sótt þau í CSV. Aðgangurinn endurnýjast ekki sjálfkrafa. Þið pantið aftur fyrir næsta mót ef þið viljið halda áfram.

›Hver sér spárnar mínar?

Aðeins fólk á þínum vinnustað, og aðeins eftir að leikurinn hefst. Enginn getur afritað spána þína fyrir leik.

›Hvernig tengjum við Teams?

Í Teams býrðu til vinnuflæði („Post to a channel when a webhook request is received“) og límir slóðina inn í Tippleik. Leiðbeiningar fylgja skref fyrir skref og hnappurinn „Senda prufuskilaboð“ staðfestir tenginguna. Slack virkar á sama hátt með incoming webhook.

Lestu persónuverndarstefnuna og skilmálana.

Tilbúin fyrir HM? Það tekur innan við mínútu að byrja.

Stofna vinnustað

Ertu með boðskóða?